Húmorinn þarf að vera í lagi.









Af Dv.is
“Pólsk yfirvöld hafa nú lagalega heimild til að gelda dæmda barnaníðinga og nauðgara með lyfjameðferð. Lögin sem kveða á um þetta tóku gildi í Póllandi í dag en þau voru samþykkt af pólska þinginu í september á síðasta ári. Lögin ná til manna sem eru dæmdir fyrir að nauðga börnum og nánum fjölskyldumeðlimum.”
Þarna erum við að tala saman, lýst vel á þetta. Ég myndi vilja taka þetta lengra en þetta er skref í rétta átt.
Tekið af vísi.is
“Skapillir einstaklingar geta nú tekið gleði sína að nýju því rannsókn sýnir að það getur verið fólki hollt að vera í slæmu skapi og vanlíðan. Rannsóknin sem hér um ræðir var unnin af sálfræðiprófessornum Joe Forgas við háskólann í Nýju Suður Wales í Ástralíu. Helstu niðurstöður hennar eru að fólk sem er í slæmu skapi á betra en þeir brosmildu með að taka ákvarðanir, láta síður blekkja sig og hugsa skýrar.”
Jæja þá hef ég þetta sem rök, virkar vel fyrir mig.
Japanar hafa alltaf verið dálítið spes en þetta er frekar ótrúlegt jafnvel miðað við þá. Þetta er víst aðal baðfata tískan í Japan núna, tekið af Pressunni. Skilur eiginlega lítið eftir fyrir ýmindunaraflið.

Maður er ekkert að verða yngri, núna þarf maður að sérhæfa sig í einhverju einu því ekki vill ég vera í notendaþjónustu/server rekstri heldur vera admin og ekki snerta uppsetningu á útstöðvum, hlaupa með prenthylki og debuga office hugbúnað fyrir fólk sem getur ekki prentað út skýrslu. Spurningin er hvað á maður að velja og hvaða kerfi á maður að veðja. Gaman að skoða laun hjá Windows administrator, meðallaun í Englandi eru 36 þúsund pund, eftirspurnin eftir Windows admin hefur farið niður um tæp 10% í ár. Meðallaun hjá Linux admin er 42.500 pund og eftirspurning hefur hækkað um sirka 10% á einu ári. Fólk virðist frekar leitast eftir opnum hugbúnaði eftir að kreppan skall á.
Draumurinn væri að sérhæfa sig í einhverju og geta svo í kringum fertugt unnið sem verktaki í Englandi. Mikil eftirspurn er eftir fólki í vinnu frá 10 dögum til sex mánaða í Englandi og kaupið er vel gott. Tökum sem dæmi, Linux admin, sex mánaða job, kaupið er 400 pund á dag. Eftir sex mánuði þá er þetta rétt yfir 9 milljónir. Ekki slæmt. Krakkarnir orðnir stórir og maður gæti skroppið frá í einhvern tíma. Jafnvel tekið frúna með í einhverja daga, hljómar vel.
Ég held að opinn hugbúnaður sé framtíðin og kaupið er töluvert betra í þeim geira, maður þarf að plana fyrir framtíðina…. hugs hugs…

Ef þetta er ekki krúttilegt þá veit ég ekki hvað.
http://visir.is/aetladi-ad-koma-pabba-a-ovart-a-afmaelisdaginn/article/2010271237032
Góðar löggur finnast á þessu skeri.
Lyfjafyrirtæki mökuðu krókinn á svínaflensunni – Var þetta eitt allsherjar svindl og svikamylla?
Vísindamenn hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO sem ráðlögðu yfirvöldum að bólusteja gegn svínaflensunni höfu áður fengið greiðslur frá lyfjafyrirtækjum sem framleiddu lyfin.
Rannsókn sem gerð var af Breska læknablaðinu (British Medical Journal) og Samtökum rannsóknarblaðamanna, sýna að ráðleggingar WHO sem settar voru fram árið 2004 voru samdar af þrem vísindamönnum. Þeir höfðu áður fengið greiðslur frá lyfjafyrirtækinu Roche, sem framleiðir lyfið Tamiflu og GlaxoSmithKline sem framleiðir Relenza, lyf sem notuð voru til að bólusetja gegn svínaflensu. Þetta kemur fram á vef The Guardian í dag, en Evrópuráðið birtir í dag skýrslu um svínaflensuna.
Áætlað er að lyfjafyrirtæki hafi grætt yfir sjö milljarða bandaríkjadala við sölu á svínaflensulyfjum til yfirvalda. Eftir dramatískar spár um alvarlegan svínaflensufaraldur reyndust ekki sannar, hefur umræðan um meira gegnsæi í lyfjageiranum orðið háværari.
Misjafnt var hversu miklum fjármunum stjórnvöld lögðu í bólusetningu gegn svínaflensunni. Pólverjar, ákváðu að fylgja ekki ráðleggingum WHO og bólusettu ekki almenning gegn svínaflensunni meðan önnur lönd eyddu miklum fjármunum í bólusetninguna, þ.m.t. Íslendingar. Bresk yfirvöld héldu því fram að 65 þúsund manns gætu mögulega látist, þar í landi, vegna svínaflensufaraldurs.
Svínaflensan reyndist vera vægari en venjuleg flensa.
Tekið af pressunni…. Skellum okkur nú í bólusetningu gegn legháls krabbameini….
Ef fólk les eitthvað um þann viðbjóð þá sér það fljótt að það er eitthvað sem þið ættuð að sleppa…
Ég bloggaði um það fyrir löngu síðan og sú færsla er hérna….
Það eru svona hlutir sem fara með mig. Það er ekki til réttlæti í þessum heimi, ekki fyrir okkur og ekki fyrir þau.
“Suður-kóreiskt par hefur verið dæmt í tveggja ára fangelsi fyrir að vanrækja dóttur sína á meðan þau spiluðu tölvuleik. Leikinn spiluðu þau að meðaltali 10 tíma á dag á netkaffihúsum, en í honum léku þau foreldra sýndarbarns. Á meðan þau önnuðust sýndarbarnið svalt dóttir þeirra heima.
Krufning leiddi í ljós að dóttir þeirra dó af vannæringu, og hafði oft verið barin fyrir að gráta. Þau komu að dóttur sinni látinni eftir að hafa verið næturlangt á netkaffihúsi. Konan þarf ekki að sitja dóminn sinn vegna þess að hún er ólétt.”
“Á meðan þau önnuðust sýndarbarnið svalt dóttir þeirra heima” Hvað er að ???
“Konan þarf ekki að sitja dóminn sinn vegna þess að hún er ólétt.” Þvílíkt réttlæti, greyið barnið sem hún gengur með.
Ætti að stilla þessu fólki upp við vegg þegar hún er búin að fæða.
Af mbl.is
“Landsbankinn hefur í hyggju að bjóða einstaklingum og fyrirtækjum í viðskiptum við bankann 25% lækkun á höfuðstól erlendra lána gegn því að þeim verði breytt í verðtryggð eða óverðtryggð lán í íslenskum krónum.”
VÁ TAKK FYRIR ÞETTA. Lánið mitt hefur bara hækkað um sirka 120%, þetta myndi hjálpa mér rosalega mikið. OG sérstaklega að breyta því yfir í verðtryggt lán. Frekar myndi ég borða minn eigin saur en að færa þetta lán yfir í verðtryggt lán sem er annað rán á fólkinu í landinu. Höldum áfram að láta taka okkur í rassinn, MEIRA anal-lube takk.
Hmm haha, prrruuummp… Galsi.is Nei bara eitthvað tjúnaður, nóg að gera í sameiningunni hér. Sameina tölvukerfi fyrir 700 manna fyrirtæki, gefandi.
Jæja kallinn er að standa sig ágætlega er búinn að missa sirka 6 kíló, kemur hægt og rólega. Veit EKKERT hvað ég á að skrifa um, eins og hefur sést hér á blogginu undanfarið, er eitthvað heiladauður. Vor dvali, köllum það bara það. Maður spyr sig, kannski Öskjuhlíðin fari að gjósa ? Spáum aðeins í því, það væri vel lukkað, einhver að borða á matsölustaðnum og þá færi að gjósa, þyrftu allaveganna ekki að fara langt til að elda kjötið. Eiginlega win win… maður spyr sig.
Kannski ég stofni Lang-Besta flokkinn í Kópavogi, ég er svoaddan grínari og fengi eflaust 1% fylgi, myndi tala við vini og kunningja, gæfi kannski Prins Polo fyrir hvert atkvæði, ég stæði mig eflaust ekki verr en þessir sauðir sem stjórna í dag. Ég er ekki að segja að þetta séu allt sauðir, kannski leynist einn loðfíll þarna, nei bíddu hann Gunnar Birgis er hættur, jæja þar fór loðfíllinn en aldrei að vita nema að hann verði með massa comeback. Loðfíllinn Mayor Quimby strikes back…Return of Gunnar Birgis. Ætli það sé ekki lítið að gera hjá dóttir hans núna ?
Mikið væri ég til í að vera í útlöndum núna, einn með frúnni, stelpurnar eru að gera hana gráhærða, næst þegar þið sjáið Áslaugu ekki benda á gráa hárið og fara að hlægja hún tekur þessu nokkuð nærri sér. Eflaust í fyrsta skipti sem ég hlakka til haustsins en þá fara þær á leikskóla. Nei maður verður víst að njóta dagsins í dag svo ég hljómi eins og Gaylord-MC-Vitur. Hmm gæti verið næsti borgari hjá Metró ?

Veit ekki sko, hvað er að gerast ? Núna er sameining við Keflavíkur flugvöll í fullum gír, maður verður eflaust meira og minna í vinnunni næstu vikur. Það er svo sem alveg í lagi, manni veitir ekki að peningnum, sérstaklega þegar það kostar 14 þúsund að fylla bílinn og það dugar ekki viku, að kaupa tvo poka í Bónus kostar 15 þúsund… Gott að lifa á Íslandi en nóg kostar það
Ég er að fara út að hlaupa í hádeginu með vinnufélaga mínum, ef það er eitthvað sem ég er ekki góður í þá er það að hlaupa, læt ykkur vita hvar á leiðinni líður yfir mig á Twitter. Hef aðalega verið að glamra á gítarinn á kvöldin og horfa á þætti, ekkert spennandi að gerast hjá manni, enda svo ekki mikið hægt að gera með þrjá gríslínga. Ég talaði við BFF ! í gær, hann Johnny, mikið langar okkur Áslaugu út til USA í heimsókn til hans, hann býr einn upp í skógi við fjöllin í Norður Karólínu, gætum gist hjá honum og slappað af, kannski í haust ef lottóið verður hliðhollt
Krakkarnir eru farnir að vakna um sex leytið útaf birtunni, þetta er einstaklega gleðilegt fyrir gamla settið, þurfum að fjárfesta í gluggatjöldum fyrir þau, gengur ekki að vakna 6:30 í allt sumar, lengir að vísu daginn, kannski maður geti vanist því.
Eitthvað sem ég hef verið að hlusta á undanfarið….
Ég fór í “frí” frá vinnu í tvær vikur, var veikur og svo tók ég nokkra orlofsdaga. Hvað er að gerast ? Ég er búinn að vera duglegur að æfa mig á gítarinn, er að undirbúa mig fyrir kennsluna í haust. Krakkarnir eru ofur hressir, aldrei mikill friður á þessu heimili, var að koma að Arney inn í eldhúsi að drekka kalt kaffi í bolla, verður gaman að sjá hvernig hún endar af því. Ég er allur að koma til af vírusnum og þessu sem hefur verið að hrjá mig, “fríið” hjálpaði mikið til.
Átakið ?
Ég skal alveg játa það um páskana þá missti maður sig í eggin, gosið og annað en ég er búinn að missa 2 kíló, ég er kominn með veðmál ef maður getur kallað það við Áslaugu, ég safna hökutopp þangað til ég er orðinn 99,8 kg. Eins og vinur minn sagði, annað hvort verður þú feitur með síðan hökutopp eða grannur og flottur, bæði win win…. Hehe kannski ekki bæði en vonandi ekki feitur með hökutopp.
Í “fríinu” þá datt ég alveg úr tölvuheiminum, bloggaði ekkert en núna lagar maður þetta fyrst maður er kominn á ról.
Nýlegar athugasemdir