Fita
Jæja ég stóð mig ekki í að blogga, ekki frekar en áður hehe.
Þetta gengur vel, ég er búinn að missa dálítið, ég gæti náð takmarkinu, vandamálið
er að ég er er að fara út með konunni til Lux í viku.. hmm ég hleyp eflaust lítið þar.
Ætla allaveganna ekki að bæta á mig úti það er alveg á hreinu.
Tekið af pressunni:
Norskur læknir segir Alþjóðaheilbrigðisstofnunina (AHS) hafa haft upplýsingar um að svínaflensan væri tiltölulega væg og að flestir 60 ára og eldri væru ónæmir fyrir sjúkdómnum en samt sem áður ákveðið að lýsa yfir hæsta viðbúnaðarstigi og heimsfaraldri.
Lars R. Haaheim, fyrrverandi prófessor í læknisfræði, hefur starfað sem ráðgjafi AHS í inflúensumálum en hann segir í samtali við norska blaðið Aftenposten að farsælla hefði verið fyrir stjórn stofnunarinnar að lýsa eigin neyðarástandi þegar þau sáu hversu væg sínaflensan var.
Gríðarlegt magn bóluefnis var framleitt í kjölfarið og dreift til ríkja heims, m.a. Íslands, og fólki skipt í nokkra mismunandi hópa eftir því hversu brýn þörfin var.
Óléttar konur voru einn þessara hópa sem fengu forgang og greinir norska blaðið frá því hvernig tvær óléttar konur töldu sig sviknar af áróðri heilbrigðisyfirvalda. Þær hafi beðið óþolinmóðar eftir að fá bóluefni síðastliðið haust en þær sjái nú að sá kvíði sem fylgdi biðinni var til einskis. Fjölmargir aðrir sem beðið hafi eftir skammti með öndina í hálsinum séu einnig nú á þeirri skoðun að óttinn hafi verið óþarfur.
Ørjan Olsvik, prófessor í örverufræðum, kannaði upprunaleg gögn frá Mexíkó, þar sem upptök flensunnar voru, og sá að þau gáfu enga ástæðu til að ætla að um hættulegan sjúkdóm væri að ræða. Þvert á móti hefðu gögnin leitt í ljós að um mun vægari sjúkdóm væri að ræða heldur en venjulega flensu.
Í júníbyrjun á þessu ári komu 16 starfsmenn AHS saman á leynifundi en ekkert hefur verið gefið upp um hverjir þessir starfsmenn séu.
Segir Olsvik afar fróðlegt að sjá hverjir þessir menn séu og hvaða tölur þeir hafi haft í höndunum þegar ákvörðun hafi verið tekin um að lýsa yfir hæsta viðbúnaðarstigi og heimsfaraldri. Óþarfi hafi verið að hræða heimsbyggðina að óþörfu.
Nýlegar athugasemdir