Heim > Almennt blogg > Keppnin Dagur 1
19 júlí

Keppnin Dagur 1

Keppnin er sú, á tveimur vikum þarf ég að missa 7kg. Ég er 106 í dag, 99kg eftir tvær vikur.

Í dag fór ég að lyfta, fór í körfubolta, spilaði nokkra leiki, svitnaði vel og fór svo heim og gerði armbeygjur og magaæfingar. Kjallinn ætlar að negla þetta, það er veðmál í gangi, segi ekki upp á hvað en á hverjum degi þarf ég að segja frá hvernig mér gengur.

Ég er eflaust að fara æfa annað hvort box eða Ju Jitsu, get ekki alveg ákveðið mig, þekki tvo gaura sem eru að kenna Ju Jitsu og eru með svarta beltið í því. Held ég fari í þá átt, drullu flott íþrótt. :)

Jæja farinn að sofa bráðum, verður erfitt að negla þetta átak og vinna 15-16 tíma á dag en það hefst :)

Categories: Almennt blogg
Tags:
  1. Björg
    21. júlí 2010 á 12:27 | #1

    Vóóó… það eru mörg kíló! Ég missti reyndar átta á tveimur vikum en það var í detoxinu í Póllandi. En gangi þér vel!:D

  2. Áslaug
    22. júlí 2010 á 17:27 | #2

    Jæja ég held að þetta takist ekki :O
    Því við erum að FARA Í FRÍ !!

  3. Björg
    22. júlí 2010 á 22:26 | #3

    Úúúúú!!:D Til hammó!;) Þá er ekki rétti tíminn fyrir aðhald… borða allt girnilegt sem að kjafti kemur:D

  4. Pabbi
    25. júlí 2010 á 14:36 | #4

    Flott hjá þér,,keep it up, 6 dagar síðan þú skrifar þetta, vona að þú sért á plani, -:)

  1. Engin trackback enn.