Heim > Almennt blogg > Fréttirnar
09 júní

Fréttirnar

Af Dv.is

“Pólsk yfirvöld hafa nú lagalega heimild til að gelda dæmda barnaníðinga og nauðgara með lyfjameðferð. Lögin sem kveða á um þetta tóku gildi í Póllandi í dag en þau voru samþykkt af pólska þinginu í september á síðasta ári. Lögin ná til manna sem eru dæmdir fyrir að nauðga börnum og nánum fjölskyldumeðlimum.”

Þarna erum við að tala saman, lýst vel á þetta. Ég myndi vilja taka þetta lengra en þetta er skref í rétta átt.

Tekið af vísi.is

“Skapillir einstaklingar geta nú tekið gleði sína að nýju því rannsókn sýnir að það getur verið fólki hollt að vera í slæmu skapi og vanlíðan. Rannsóknin sem hér um ræðir var unnin af sálfræðiprófessornum Joe Forgas við háskólann í Nýju Suður Wales í Ástralíu. Helstu niðurstöður hennar eru að fólk sem er í slæmu skapi á betra en þeir brosmildu með að taka ákvarðanir, láta síður blekkja sig og hugsa skýrar.”

Jæja þá hef ég þetta sem rök, virkar vel fyrir mig.

Japanar hafa alltaf verið dálítið spes en þetta er frekar ótrúlegt jafnvel miðað við þá. Þetta er víst aðal baðfata tískan í Japan núna, tekið af Pressunni. Skilur eiginlega lítið eftir fyrir ýmindunaraflið.

Categories: Almennt blogg
Tags:
  1. Áslaug
    9. júní 2010 á 20:46 | #1

    Mikið vildir þú vera í Japan núna :) hahaha

  2. Björg
    23. júní 2010 á 18:22 | #2

    Já, sæll… þetta er hörmulega ógeðslegt…

  3. Björg
    23. júní 2010 á 18:26 | #3

    Er myndaalbúmið farið?

  1. Engin trackback enn.