Heim > Æfingadagar > 4.3 Lappir
05 mars

4.3 Lappir

Farið að líða aðeins betur í líkamanum. Þetta var stress dagur, Jakob þurfti að fara á handbolta æfingu hálf-fimm, ég þurfti að mæta niður eftir klukkan fjögur, einn bíll, redda pössun og jada jada jada. Jada ? Meikar ekki sens. Þetta reddaðist allt. Ég komst á æfingu og var nokkuð smeykur því ég tognaði í vinstra lærinu fyrir tveim vikum og hef haft það svona í huganum og þegar maður er í miðri hnébeygju þá vill maður helst ekki að löppin gefi sig og ég detti með hlassið.

Byrjaði á upphitun, stöngin eflaust 30 sinnum sem er 20 kg. Svo fór ég í 50kg x 10 tvö sett. 70kg x 8 tvö sett, 90 x 6 tvö sett, 100 x 5 tvö sett, 115kg x 4 tvö sett, 125kg x 4. Siðan var það lying leg curls, 12 x 35, 10 x 40, 8 x 45, 6 x 45, tækið fer bara upp í 50kg sem ég tek venjulega sex sinnum en ég sleppti því útaf tognuninni um daginn.

Var mjög hress með 125kg x 4 því hnéybeygjur eru ekki uppáhaldið eins og er. Næst er stefnan á 130kg x 4. Vonandi næst það.

Ég beilaði heim eftir það, vildi vera lengur en mamma sem var að passa þurfti að mæta í tölvuskólann. Ekkert betra en að lyfta með gaurum eins og Auðunni og Halldóri, Rammstein í botni og allir að hvetja hvorn annan og ekki slæmt að lyfta með íslandsmeisturunum… Bak á morgunn, Deadlift, er að fýla það vel, fór í 200kg seinast, get farið þyngra en tek því rólega þar sem ég er enn að læra. Hastalavista.

Kv. Big A.

Categories: Æfingadagar
Tags:
  1. Áslaug
    5. mars 2010 á 10:26 | #1

    Hvaða hvaða , þú beilaði ekkert, fórst á æfingu & fórst aðeins fyrr heim EINN dag :O
    Stendur þig eins & tröll!!

  2. Björg
    8. mars 2010 á 15:17 | #2

    Í dag fór ég upp og niður tvo stiga.

  1. Engin trackback enn.