Heim > Æfingadagar > 3.3 Vandræðalegt.
05 mars

3.3 Vandræðalegt.

Ókey, sumt er best ósagt en þar sem ég ætla að hafa þetta dagbók þá er best að standa við það. Mér leið aðeins betur en í gær, var samt ekki hress, fór niður í Breiðablik, Auðunn og Halldór voru ekki að æfa í dag, ég hugsaði um þetta sem dótadag, ætlaði að taka hendur og axlir. Byrjaði á öxlum, tók 6x60kg í military press, back press og upright rows og var alveg að kúka á mig. Ég get farið þyngra og oftar en það svo ég fattaði strax að eitthvað var ekki í lagi. Tók svo skullcrushers og barbell curl, segi ekki einu sinni þyngdirnar því það skiptir ekki máli, ég fór bara heim í fýlu.

Ég gerði aftur á móti eitt, keypti tvo dúnka af Cellmass frá BSN. Fékk það á rosalega fínu verði og fylgist með review á því. Get sagt að bragðið er suddalega gott. Loksins farinn að bryðja kreatínið aftur…. Yeah baby. Lappir á morgunn með tröllunum Auðunni og Halldóri.

Categories: Æfingadagar
Tags:
  1. Engin ummæli enn
  1. Engin trackback enn.