Heim > Æfingadagar > Mánudagurinn 1.3
04 mars

Mánudagurinn 1.3

Jæja fyrsta færslan í “Powerbuilding” dagbókinni, afhverju kalla ég þetta Powerbuilding, því þetta er blanda af kraftlyftingum og líkamsrækt. Ég stund kraftlyftingar þrjá daga í viku. Mánudagur er brjóst sem er bekkpressan, miðvikudagur er hnébeygjur og svo föstudagur er bak eða deadlift. Þriðjudaga og fimtudaga tek ég axlir, hendur og bak.

Ég byrjaði að lyfta 11 janúar.

Mánudagurinn, það er sem sagt brjóst, leið vel og fannst ég vera ágætlega sterkur. Fyrir æfingu tók ég sjö Amino Bolic frá UN. Hef verið kreatín laus núna í tvær vikur. Styrkurinn er farinn að dala dálítið. Ég tók 6x60kg, 6x80kg, 4x90kg, 2x100kg, 1x110kg. Eins og ég sagði þá hef ég verið með kvef og verið eitthvað slappur, ég hefði getað tekið léttari þyngdirnar mun oftar en ég sleppti því þar sem ég vildi ná max í bekk sem í dag er 110kg. Síðan áfram í bekknum tók ég 90kg, þrjú sett með 3 reps. Síðan 70kg tvö sett með 5-6 reps með þröngt grip. Svo hallandi bekkur með 12x 40kg, 10x50kg, 8x60kg 6x70kg. Síðan tók ég dumbell flys, eða handlóða flugur, veit aldrei hvort maður notar enskuna eða ekki. Það var 12×17,5kg,10x20kg,8×22,5kg. Eftir ræktina tók ég eina skeið af On próteininu.

Þetta í heildina var frekar léttur dagur nema 110kg í bekknum, ástæðan var kraftleysi og eftir bekkinn þá var mér töluvert illt í vöðvafestingunum í höndunum og öxlunum, hugsaði ekki mikið út í það þá. Svaf frekar illa um nóttina þar sem sársaukinn versnaði og ég kom mér ekki fyrir í rúminu, var alltaf að vakna og skipta um stöðu.

Ég ætla að skrifa niður hvað ég er að taka og skrifa smá review um hvern hlut fyrir sig.

Kveðja.
Armanator.

Categories: Æfingadagar
Tags:
  1. Áslaug
    4. mars 2010 á 10:27 | #1

    Ástæða fyrir kraftleysi, sem ég reyndar ekki sé :) er sú að þú ert slappur & kvefaður.
    Verður líka að taka léttara þessa daga sem þú ert slappur, leyfa líkamanum að hvílast & endurnæra sig.
    Finna annað útlit :)

  2. Björg
    4. mars 2010 á 20:31 | #2

    Í dag settist ég og stóð upp nokkrum sinnum!… :Þ

  3. Áslaug
    5. mars 2010 á 10:19 | #3

    Góð Björg !! :)

  1. Engin trackback enn.