30 ár
Núna verður kjallinn 30 ára í febrúar, ég skrifa bara kjallinn því að konan þolir það ekki. Breytist eflaust ekki mikið við það nema fólk sem er vitlaust og segir mann vera kominn á fertugs aldurinn, BARA á Íslandi er þetta sagt og þetta meikar ekki sens, erft frá forfeðrum okkar eflaust. Þegar fólk er 30 og eitthvað þá er það á þrítugsaldrinum það sér það hver maður samt rembust við áfram að segja þetta vitlaust. Allaveganna hvað er að frétta ? Það sama og venjulega, vinna eins og ég get, reyna að borga fall bankanna, við litla fólkið eigum að borga allt upp í topp svo hægt sé að afskrifa allt hjá elítunni og fólk fái t.d Samskip aftur upp í hendurnar á silfurfati. Hvað er að okkar þjóðfélagi þegar menn eins og Ólafur fá að kúka upp á hnakka og svo eru engar afleiðingar en ég vill ekki samþykkja að borga meira en upphaflega greiðsluáætlunin mín hljómaði upp sem ég skrifaði undir þá á að senda það í lögfræðing. Vildi stundum að við værum frakkar, þá myndum við fara út og gera einhvern usla, ekki gleyma þessu um leið og við löbbum fyrir hornið.
Ég er búinn að vera eins og brjálæðingur í ræktinni í mánuð núna, þéttur nettur, enn eitt sem fer í taugarnar á konunni, þéttur nettur hehe. Gengur vel, er kominn með félaga sem ég get öskrað á og hann á mig. Ætli maður endi ekki bara sem einkaþjálfari, taki Gillz á þetta, enda kannski með einkanúmerið Hlunksi.
Núna er verið að sameina Flugstoði við Keflavíkurflugvöll, alltaf gaman af þannig óvissu, hefur maður vinnu, fer ég að vinna í Keflavík, breytist kannski ekki neitt ? Whatever, það sem verður gerist og það hjálpar ekkert að hafa áhyggjur af því, lánunum og þessari blessuðu ríkisstjórn sem var að lækka launin mín með þessum blessuðu skattaþrepum… Var að fá upplýsingar um vinnu og flutning til Kanada, kannski maður endi bara þar. Grasið er kannski ekki grænna þar en ég trúi því ekki að það sé verra en hér miðað við hversu margir eru að fara þangað.
Kveðja.
Einn pirraður íslendingur sem eins og aðrir gerir ekkert til að breyta stöðu mála hér á landi.
Hvar sæki ég um í elítunni ?
Þrítugur strákurinn
Tíminn líður sko, þetta er okkar 4rða ár heima eftir að við komum frá LA, mér finnst ekki eins & það sé svona langt síðan.
Ætli maður verið ekki að fara að plana veisluna þína
Selja/leigja út & flýja í sólina, Kanada, Nýja sjáland ??
Hehe, sólina í Kanada, Áslaug?:) Hún er víst ekki mikið gleiðari þar en hér nema jú, sumrin eru eflaust aðeins lengri og betri. En já, ammóin ykkar, one down, one to go… Til hamingju með daginn í gær, Áslaug:) Vona þið hafið haft það gott. Stendur þig vel í ræktinni, Ármann. Með þessu áframhaldi muntu geta lyft mér í maí!;D Þið gætuð orðið ágætis einkaþjálfarateymi, þú sæir um æfingarnar og Áslaug um mataræði og slíka ráðgjöf. Something to think about…
Alltaf gaman að lesa pistlana þína Ármann. Líst vel á einaþjálfarateymið
Sniðug hugmynd Björg !!
Ég er alltaf að segja Ármanni að taka próf & gerast þjálfari, sérstaklega eftir að hafa séð þjálfarana niðrí Sporthúsi … úff
Já sko sumrin eru betri í Kanada