Heim > Almennt blogg > Ýmislegt
14 jan.

Ýmislegt

Haíti

“Haíti-búar sömdu við djöfulinn”

“Bandríski sjónvarpsprédikarinn Pat Robertson sagði í gærkvöldi, að Haíti-búar hefðu gert samning við djöfulinn og ættu því sjálfir sök á jarðskjálftanum, sem lagði höfuðborg landsins í rúst á þriðjudagskvöld.  ”

Held að greyið Pat Robertson sé kominn á þann aldur að hann eigi að leggjast í helgan stein og taka því rólega. Ég hef ekki hugmynd hvort það sé 2% sannleikur í því sem hann segir en þó það væri 100% satt þá skiptir það ekki máli. Maður segir ekki svona eftir að tugþúsundir eða hundruði þúsunda eru látnir.

Bólusetningin

“Yfirmaður heilbrigðismála Evrópuráðsins: Svínaflensan stærsta svindl síðari tíma”

“Yfirmaður heilbrigðismála Evrópuráðsins segir að svínaflensan hafi verið ýkt úr hófi fram af lyfjafyrirtækjum sem græddu milljarða á því að selja bólusetningarlyf. Hann segir flensuna eitt stærsta svindl síðari tíma. Wolfgang Wodarg segir að lyfjafyrirtækin hafi grætt milljarða á milljarða ofan með því að hræða líftórun úr ríkisstjórnum og almenningi og að lokum knúð Alþjóðheilbrigðismálastofnunina til að lýsa yfir heimsfaraldri.”

Hmm já auðvitað, hvað hef ég vælt um undanfarna mánuði, þetta gekk engan veginn upp, afhverju að bólusetja fólk fyrir einhverju sem er ekki verra en venjulega flensa ? Þetta var blásið upp í fjölmiðlum í Bandaríkjunum sem nota bene lyfjafyrirtækin eiga stóran part í og lobbýisminn í Washington ræður þinginu þarna úti. Síðan gleypa fjölmiðlar í öðrum löndum við þessu bulli og upp blæs annað “fuglaflensu” mál þar sem allir ættu að kaupa einhver “X” lyf og láta sprauta sig en svo gerist ekkert.

Guð elskar okkur ?

Ég hef mikið spáð í þessu öllu saman og komist að þeirri niðurstöðu að ég skil þetta ekki en ég veit að ef ég hefði ekki trúna þá væri ég frekar búinn á því. T.d ef ég hætti að trúa því að hann verndar börnin mín, gefur okkur góða heilsu, sér um fjármálin mín (svo lengi sem ég geri mitt besta) og svo margt annað þá yrði ég þunglyndur. Virkar fyrir mig kannski ekki alla.

Categories: Almennt blogg
Tags:
  1. Áslaug
    14. janúar 2010 á 10:54 | #1

    Rosalegt að heyra með Pat, segi eins & þú hann ætti nú að fara að hætta þessu fyrst hann er farinn að segja svona. Hrikalega illa gert !! Hann er allavega ekki í góðum málum eftir þetta held ég greyið.
    Fólk treystir læknum of mikið, mest allt sem þeir segja er satt & rétt en annað er að sýna sig núna td. með þessa flensusprautu, ég myndi ekki vilja vera einn af þeim sem lét sprauta sig núna , obbobbobb :O
    Sá læknaþátt um daginn hann er !amerískur! & þar voru þau meðal annars að tala um að fá alltaf álit annars læknis eftir greiningu hjá fyrsta lækni & helst að leita til 3ja læknisins & ef maður er enn ósáttur við niðurstöðuna & þær aðferðir sem þessir læknar vilja nota að halda þá áfram að leita að lækni sem er til í að hjálpa þeim án td. lyfja. Fannst þetta merkilegt þar sem þetta er amerískur þáttur :)

    En jú verður maður ekki að trúa því að það sé eitthvað æðra sem verndi mann & varðveiti !! :)

  2. Björg
    18. janúar 2010 á 14:55 | #2

    Sammála með Pat Robertson, hann sagði líka eitthvað svipað þegar fellibylirnir gengur þar yfir í fyrra eða hitteðfyrra. Það getur enginn tekið svona stórt upp í sig. Svínaflensan, já, virðist vera maðkur í mysunni:O Óttinn getur verið harður húsbóndi, yfirvöld hlaupa til í góðri trú um þau séu að vernda og almenningur heimtar úrræði af því að allir eru hræddir. Heimurinn er orðinn svo “lítill” að það þarf lítið til að skapa histeríu eða einhvers konar æði nú til dags. Og já, sammála með síðasta partinn, – skil ekki heldur en trúi því að Guð sé réttlátur og vel að hafa það alltaf sem lokasvar varðandi þessa hluti… :)

  1. Engin trackback enn.