Heim > Almennt blogg > Guð elskar okkur ?
11 jan.

Guð elskar okkur ?

Núna er ég dottinn í þennan hugsunarhátt, að reyna að skilja almættið. Það er greinilega eitthvað sem ber að forðast eins og heitan eldinn. Því meira sem ég hugsa um þetta því minna skil ég og ekki var það mikið fyrir. Leiðir eingöngu til hausverks og depru, blandað með smá kvíða því óneitanlega fer maður að velta því fyrir sér hvort Guð sé til og ef hann er til, er honum orðið nokkuð sama um okkur litlu mennina ?

Ástæðan fyrir þessari hugarleikfimi eru ýmsar heimildarmyndir sem ég hef verið að horfa á og almennt fréttir í lífinu, ein mynd sem sló mig fjallar um Joseph Mengele sem var “læknir” í Auswitch. Þetta er án vafa ein sjúkasta manneskja, ef manneskja gæti kallast sem ég hef lesið eða séð heimildarmynd um. Sem læknir þá var hann í því hlutverki að velja hverjir myndu deyja og hverjir ættu að vinna þegar fólk steig af lestinni við komuna til Auswitch. Hafði hann sérstakan áhuga á tvíburum, þá krökkum. Hann hélt nákvæmt bókhald yfir hvaða prufanir hann gerði á börnunum og hver útkoman var. Af þeim þrjú þúsund tvíbörum sem hann skráði inn þá lifðu 180 tvíburar þetta af. Þar með eru ekki talin önnur börn sem ekki voru tvíburar. Það sem hann gerði við greyið börnin er ólýsanlegt eins og að taka tvíbura og sauma þá saman bak í bak með æðum og öllu tilheyrandi til að sjá hvað myndi gerast. Þegar börnunum var skilað til foreldranna sinna í þessu ástandi þá kvöldust þau svo mikið að þau kyrktu sjálf sín eigin börn. Grimmdin og viðbjóðurinn er óendanlegur. En þetta er dálítið síðan, við getum alveg eins talað um Írak, Afríku eða önnur ríki þar sem börn eru drepin daglega.

Mattheus 7:11 “Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir, sem biðja hann?”

Þarna er væntanlega verið að tala um andlegar gjafir og loforð um himnavist ? Þetta virkar dálítið eins og “The Secret”, í þeirri bók er talað um að ef maður hugsar nógu mikið um hlut og sér hann fyrir sér þá muni það gerast. Allt gott og blessað en virkar einungis vel fyrir okkur sem lifum í vellystingum en ekki þá sem búa t.d í þriðja heiminum. Sjáið þið fyrir ykkur barn í Afríku sem á varla í sig og er kannski með eyðni setjast niður og hugsa daglega um að fá nýjan jeppa og einbýlishús og óendanlega mikið af hreinu vatni og mat ? Þetta virkar ekki fyrir þau og heldur ekki fyrir okkur. Fór að hugsa um þetta ritningarvers þegar ég sá fyrir mér þúsundir barna vera leidd inn í gasklefann í Auswitch og verð satt best að segja að ég skil ekki upp né niður í þessari tilvist okkar.

Guð sem elskar okkur meir en allt, svo segir Biblían getur látið hræðilega hluti viðgangast daglega, ég get ómögulega skilið það, þá segja sumir, “við erum fallin sköpun, við völdum í aldingarðinum Eden”. O.k ég valdi aldrei neitt, einhverjir aðilar sem hétu Adam & Eva völdu, er það sanngjarnt, er Guð réttlátur að láta billjónir manna deyja í gegnum þúsundir ára vegna þess. Einu sinni var ég að velta því fyrir mér hvort börn sem deyja fari til himna, spurði ég fróðari menn en mig að því, það svar sem ég fékk vakti eiginlega upp fleiri spurningar. “Ef foreldrarnir hafa tekið á móti Jesú og eru lifandi trúaðir þá fara börnin til himna”. Hverskonar grín er þetta ? Sem sagt nær flest öll börn fæðst hafa komast ekki til himna. Eins og fjögurra ára gamli strákurinn sem dó í kirkjunni í Bandaríkjunum um daginn útaf voðaskoti, einhver fáviti í langri fjarlægð skaut upp skoti og það hæfði þennan greyið strák. Ef mamma hans og pabbi voru ekki lifandi trúuð þá fer hann ekki til himna, þó svo hann hafi ekki aldur til að taka neina afstöðu í málinu ? Frekar skrýtið finnst mér allt saman. Ég skil vel að lífið og tilveran er ferðalag og í gegnum það ferðalag eigum við að kynnast trúnni, Guði og verða betri manneskjur og leiða aðra til trúar, þá spyr ég, hvar enda börnin sem fá aldrei tækifæri til að taka þetta ferðalag ?

Mark 10:14“Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.”

Ætli þetta þýði að öll börn komist til himna ? Ef ekki, ef einungis sum börn komast til himna hvað verður miðað við, horfir Guð á þinn innri mann, karakter og annað ? Hann er náttúrulega Guð, sér allt veit allt, svo er sagt, getur hann þá ekki dæmt börnin út frá því hvernig þau myndu vera í framtíðinni ? Varla, hann gaf okkur frjálsan vilja, eins og sagt var í Bruce Almighty myndinni, hvað sem Guð gerir þá skiptir hann sér aldrei að frjálsa viljanum.

Nóg um börnin hvað um okkur sem eldri eru ? Í biblíunni er það frekar einfalt, ef við höfum ekki meðtekið Jesú og lifum samkvæmt hans boðorðum þá munum við brenna eins og Bubbi sagði, eða frekar enda í helvíti, hvað svo sem helvíti þýðir.

Guð elskaði okkur það mikið er sagt að hann hafi sent sinn einkason til að deyja fyrir okkur, o.k en afhverju ekki bara að fyrirgefa Adam og Evu og sleppa þessu öllu saman og þessar þúsundir sem eru daglega að missa sinn einkason eða einkadóttur þurfi ekki að gang í gegnum það ? Eflaust of einfalt fyrir Guð, hann vill greinilega að allir gangi í gegnum píslargönguna og erfiðleika í lífinu og þar af leiðandi velji Jesú hvernig sem á móti blási hvort sem það er krabbamein eða einhver sem maður elski deyr.

Opinberunarbókin 7:14 “Þetta eru þeir, sem komnir eru úr þrengingunni miklu og hafa þvegið skikkjur sínar og hvítfágað þær í blóði lambsins.”

Útskýrt best í þessu ritningarversi, ég bara skil ekki afhverju það ÞARF að vera þrenging og allt þurfi að vera útatað í blóði og dauða.

Kveðja úr þrengingunni miklu.

Auswitch

Tikrit bílasprengja

Súdan

Categories: Almennt blogg
Tags:
  1. Björg
    11. janúar 2010 á 11:59 | #1

    Ég segi bara það sama og þú í byrjun, skil minna og minna ef ég fer inn á þessar brautir, reyni að dvelja ekki lengi þar því þá vil ég bara loka mig af í kofa uppi á fjalli:Þ Commenta betur seinna, verð víst að vinna eitthvað í vinnunni en ég reyni bara að treysta því að Guð sé réttlátur ávallt en ég skil þessar hugleiðingar vel. Ég trúi því alla vegana að þeir sem ekki hafa hvað má segja, vit eða einhvers konar rænu eða skilning, á sama hvaða aldri sem er, rati beint til Guðs. En þetta er fátæklegt hjá mér að svo stöddu, most likely I´ll be back;)

  2. Áslaug
    11. janúar 2010 á 12:02 | #2

    Jahá! Góðar pælingar, mjög góðar .. Kannski einhver fróðari geti svarað :)
    Efast samt um að einhver geti almennilega svarað þessu. Ætli maður verði ekki bara að bíða ??
    Þarf aðeins meiri tíma til að spá í þessu. En myndirnar, ææ æææ óó heimurinn er vondur !! & allt það sem gerðist í Auswitch, við fáum það aldrei skilið.
    En eitt veit ég (að ég held) að börn & gott fólk yfirhöfuð er ekki sett í sama flokk & td. þeir sem voru ábyrgir fyrir hlutunum í Auswitch eða jafnvel menn/konur/börn sem myrða aðra eða framkvæma á þeim ósiðlegar gjörðir.

  1. Engin trackback enn.