Borgum upp í topp
Þessi svokallaða gerfi “skjaldborg” sem er í gangi er náttúrulega ekkert annað en svikamylla. Hverjum halda bankarnir að þeir séu að hjálpa ? Engum nema sjálfum sér, ekki nóg með að þeir komu skerinu á hausinn heldur nú ætla þeir að halda áfram að ræna okkur en þannig að það taki tugi ára og við borgum áfram hægt og rólega með bros á vör, til hvers ? Að borga fyrir endurreisn bankanna, já við eigum að gera það, ekki eru þeir að eltast við útrásar-plebbana, nei við þorum ekkert að frysta eignir þeirra eða taka þeirra fjármuni upp í skuldirnar, nei skulum frekar hækka allar álögur á fólkið í landinu, meðan við erum að því þá skulum við kynna ýmsar greiðsluaðlaganir sem eiga að hjálpa þeim, nota bene, ekki til lengri tíma, greiðslubyrðin þín lækkar t.d um 20% en þú borgar nokkrum tugum milljóna meira en þú ættir að gera, bara vegna þess að við vorum svo væn að lækka mánaðargreiðslubyrðina þína. Já börnin þín geta núna erft fjögurra herbergja íbúðina þína sem þú hefur borgað af samviskusamlega eftir að þú deyrð úr elli og þau haldið áfram að borga af þessari 4 herbergja íbúð, hugsa sér hvað börnin mín eru heppin, ísland er gott land. Varla, rekið af fávitum en mestu fávitarnir erum við, sem brosum og borgum, segjumst núna ætla að kjósa aftur framsókn og sjálfstæðisflokkinn því að allsheimer-gullfiskaminnið okkar er svo sorglega lélegt.
Ég borga af mínu láni samkvæmt greiðsluáætlun, ekki samkvæmt því sem að bankinn er að rukka inn, núna eru hótunar/rukkunar bréfin farin að koma inn um lúguna, skjaldborgin er að standa sig, í stað þess að ég borgi þó það sem ég get á mánuði ætli það sé ekki betra að taka íbúðina og bílinn upp í skuldina og bankinn selur svo einhverjum góðkunningja sínum íbúðina á klink og hann selur hana svo með nokkur hundruð pósent gróða, eins og einmitt slitastjórnirnar eru að gera í dag. Ísland í dag.
Þessi vina-klíku bönd sem eru allstaðar í okkar litla þjóðfélagi er til skammar, því engum hjálpar þetta nema elítunni, við hin, eins og ég sagði áðan, brosum, kannski setjum upp fýlusvip en borgum. Hvað annað er hægt að gera segir þú ? Þetta kristallast best í Icesave málinu, íslendingar vilja bara borga, hvað er að okkur, afhverju ekki að fara með þetta fyrir dómstóla og allaveganna athuga hvort við myndum vinna málið eins og margir mun fróðari menn en ég segja að við myndum eflaust gera, nei því ríkisstjórnin vill bara brosa og borga, rukkum bara litla manninn hann hefur hingað til borgað og ekki rifist, hækkum vsk skattinn…
Ísland er bjáni, punktur.

Nýlegar athugasemdir