Heim > Almennt blogg > Nýtt ár
07 jan.

Nýtt ár

Nýtt ár, ég verð þrítugur í febrúar, einhvernveginn þá fór þessi áratugur furðulega hratt. Hvað á að gera á árinu ? Ég gerði engin áramótaheit en stefnan er sett á nokkra hluti, eins og margir íslendingar hugsa, koma sér í betra form, reyndar byrjaði ég á því í desember. Ekki reyki ég svo það er sem betur fer ekki issue lengur, planið er að drekka ekki dropa af áfengi á árinu, vonandi gengur það eftir. Væri rosalega fínt að komast í vinnu með hærri laun en ég hef í dag eða *hóst* víkingalottó verði mér hliðhollt á árinu. Vera meira með krökkunum og gera eitthvað uppbyggilegt á kvöldin en ekki hanga í tölvunni og horfa bara á imbann, lesa eitthvað og læra meira. Allt er þetta gott og blessað en núna er að aga sig eins og japani og gera það sem maður ákveður.

11 janúar byrja ég í líkaminn fyrir lífið prógramminu frá Eas, kannski heimskulegt en allaveganna setur pressu á mann, er þriggja mánaða prógramm. Læt ykkur vita hvernig gengur í því. Slóðin á þetta er hérna: http://likami.eas.is/

Categories: Almennt blogg
Tags:
  1. Björg
    11. janúar 2010 á 11:54 | #1

    Þetta plan hljómar bara mjög vel:) Vaxa og dafna og keep it simple. Ég veit ekki alveg með planið hjá mér, þarf aðeins að setjast niður og hugsa. Maður þyrfti að gera það oftar… En gangi þér vel í átakinu:)

  2. Áslaug
    11. janúar 2010 á 13:06 | #2

    Fínasta plan, nú er að standa við það .. Svona að mestu leiti :)

  3. Áslaug
    11. janúar 2010 á 13:07 | #3

    Þrítugur kallinn .. ég þarf sko að fara að leita af almennilegri gjöf & plana partý :)

  1. Engin trackback enn.