ÁRMANN ERTU TÝNDUR ?
Hmm sorry, ég er án vafa afkastamesti bloggari landsins, kem sterkur inn. Ég hef oft hugsað, “ég þarf að blogga”, spáðu samt í því ef þetta er eitthvað sem ég “þarf” að gera, maður “þarf” ekkert að gera þetta en mér finnst þetta furðulega skemmtilegt loksins þegar ég drullast til þess, svipað eins og með ræktina giska ég á.
Talandi um ræktina þá er ég farinn að æfa með Palla í World Class í mosó og hann er að taka mig í gegn. Áslaug greyið langar í ræktina en það gengur illa að finna tíma í það. Svo mikið vesen á manni að ég er lítið heima, vinna hér, laga þetta…. og svoleiðis.
Maður gæti skrifað heila ritgerð um hvað er að gerast í þjóðfélaginu en ég ætla að hlífa ykkur við því, nóg fær maður af þessu bulli annarsstaðar. HOUSE !… er byrjaður aftur, án vafa bestu þættir (myndi segja EVER ef ég væri gelgja eða Gillz) í sögu heimsins…. eða hmm nei kannski ekki, bestu þættir eftir að Friends hættu. Ef þú hefur ekki horft á House þá hefur þú annað hvort búið í Grímsey eða verið í fangelsi, ef hvorugt á við þig þá hefur þú enga afsökun. Nú er bara að Hous’a sig upp og horfa á alla þættina. Helst í einni röð, fullt af kaffi, munið að standa upp eftir hvern þátt og deyja til hægri…. deyja til vinstri.
Amma, afi, Björg, Lúkas og Benni eru í Tyrklandi, magnað nokk, í fínum hita og hérna er slydda og stöku snjókoma og SKÍTkalt. Óska ég hér með ykkur til hamingju með hitann, vonandi er Lúkas að skána og bið að heilsa ykkur öllum.
PARTÝ !
NEI ykkur er ekki boðið, SORRY…. hmm ég er ekki búinn að fá mér kaffi… (brain fart mundi allt í einu eftir því) Já partý…. A.D.D einhver ? Á morgunn þá er það fyrst fríið hjá mér og Áslaugu frá börnunum í tvö ár. Já tvö ár…. (Tár rennur niður kinnina, dramatísk músík spilast) Á hádegi á morgunn skutlum við hernum til mömmu og pabba, þau hafa strumpana í sólarhring. Við förum á Argentínu, hellisbúann, bláa lónið og fleira…. massa gaman og síðan sofum við hjá mömmu og pabba og þau verða í okkar íbúð með krílin. Fínt, getum farið í heitapottinn og slappað af í einbýlishúsi….nóg pláss…
Talandi um pláss, EF einhver vill skipta á íbúð í kópavogi á par/rað húsi einhversstaðar á sléttu þá er ég game. Ég og Áslaug sofum inn í stofu…. kemur ágætlega út, kemur mikið betur út fyrir krakkana. Nágrannarnir eru að vísu að venjast því að sjá mig labba um hálf/full nakinn á morgnanna en það gæti verið gróðarlind, pay per view anyone ?
Annars náðist mynd af mér þegar ég vissi að við værum að fara í smá frí….

hahahahaha góður !
Kíkir í kaffi eftir bláalóns ferðinna
Já gæti verið gaman, plata konuna í það
Haha, alltaf gaman að þér þegar þú kemst í þennan gírinn. Til hamingju með fríið!:D Vona að þið getið átt æðislegan dag. Planið hljómar mjög vel. Og takk fyrir hamingjuóskir vegna veðursins:) Reyndar ekkert spes í dag og á að rigna næstu tvo en þó góður hiti. Amma er búin að vera í rúminu frá því á mánudaginn:( LP er orðinn góður, bara með leifar af kvefi. House, já, snilldarþættir. Þarf að fara að ná í gamla sjónvarpið mitt á Laugarvatni svo við getum séð Skjá einn fyrst hann er byrjaður aftur. Það eru örugglega margar húsmæður í Baugakórnum sem myndu borga slatta fyrir berrasaðan gæja úti á svölum að gera Mullers æfingarnar á morgnana;) Maður verður að bjarga sér á þessum síðustu og verstu;) Ekkert að því að veita fólkinu það sem það vill;) Bestu kveðjur í bili, leitt með brósa. Gangi þér líka vel í ræktinni:) Stuðkveðjur til Áslaugar! Taktu dansinn í Bláa lóninu.