Safn

Safn fyrir flokkinn ‘Æfingadagar’
23 mars

Æfingarnar

Núna er allt á hold hjá mér í þeim efnum, verð að bíða eftir niðurstöðum úr blóðprufunum. Annars fór ég í ræktina á föstudaginn og ætlaði að taka dótadag. Smá axlir, hendur og bak en eftir sirka 15 mínútur þá var mér orðið svo illt í líkamanum að ég gekk út. Það sem fer mest í taugarnar á mér akkurat núna er ekki að geta ekki lyft heldur að eiga erfitt með að anda í nokkrar mínútur, ótrúlegt en satt þá fattar maður fljótt hversu háður ég er súrefni þegar það er ekki að skila sér :)

Categories: Æfingadagar Tags:
05 mars

4.3 Lappir

Farið að líða aðeins betur í líkamanum. Þetta var stress dagur, Jakob þurfti að fara á handbolta æfingu hálf-fimm, ég þurfti að mæta niður eftir klukkan fjögur, einn bíll, redda pössun og jada jada jada. Jada ? Meikar ekki sens. Þetta reddaðist allt. Ég komst á æfingu og var nokkuð smeykur því ég tognaði í vinstra lærinu fyrir tveim vikum og hef haft það svona í huganum og þegar maður er í miðri hnébeygju þá vill maður helst ekki að löppin gefi sig og ég detti með hlassið.

Byrjaði á upphitun, stöngin eflaust 30 sinnum sem er 20 kg. Svo fór ég í 50kg x 10 tvö sett. 70kg x 8 tvö sett, 90 x 6 tvö sett, 100 x 5 tvö sett, 115kg x 4 tvö sett, 125kg x 4. Siðan var það lying leg curls, 12 x 35, 10 x 40, 8 x 45, 6 x 45, tækið fer bara upp í 50kg sem ég tek venjulega sex sinnum en ég sleppti því útaf tognuninni um daginn.

Var mjög hress með 125kg x 4 því hnéybeygjur eru ekki uppáhaldið eins og er. Næst er stefnan á 130kg x 4. Vonandi næst það.

Ég beilaði heim eftir það, vildi vera lengur en mamma sem var að passa þurfti að mæta í tölvuskólann. Ekkert betra en að lyfta með gaurum eins og Auðunni og Halldóri, Rammstein í botni og allir að hvetja hvorn annan og ekki slæmt að lyfta með íslandsmeisturunum… Bak á morgunn, Deadlift, er að fýla það vel, fór í 200kg seinast, get farið þyngra en tek því rólega þar sem ég er enn að læra. Hastalavista.

Kv. Big A.

Categories: Æfingadagar Tags:
05 mars

3.3 Vandræðalegt.

Ókey, sumt er best ósagt en þar sem ég ætla að hafa þetta dagbók þá er best að standa við það. Mér leið aðeins betur en í gær, var samt ekki hress, fór niður í Breiðablik, Auðunn og Halldór voru ekki að æfa í dag, ég hugsaði um þetta sem dótadag, ætlaði að taka hendur og axlir. Byrjaði á öxlum, tók 6x60kg í military press, back press og upright rows og var alveg að kúka á mig. Ég get farið þyngra og oftar en það svo ég fattaði strax að eitthvað var ekki í lagi. Tók svo skullcrushers og barbell curl, segi ekki einu sinni þyngdirnar því það skiptir ekki máli, ég fór bara heim í fýlu.

Ég gerði aftur á móti eitt, keypti tvo dúnka af Cellmass frá BSN. Fékk það á rosalega fínu verði og fylgist með review á því. Get sagt að bragðið er suddalega gott. Loksins farinn að bryðja kreatínið aftur…. Yeah baby. Lappir á morgunn með tröllunum Auðunni og Halldóri.

Categories: Æfingadagar Tags:
05 mars

2.3 Frí.

Jæja þriðjudagurinn, ég var í henglum eftir mánudaginn, illt á nokkrum stöðum og var virkilega aumur, gat varla lyft mér upp úr baðinu svo ég tók frí. Pestin ekki að gera sig. Um helgina ætla ég að setja upp sér síðu hérna inni sem fer yfir efnin sem ég er að taka. Allaveganna sjáum til hvað ég get gert á morgunn. :(

Categories: Æfingadagar Tags:
04 mars

Mánudagurinn 1.3

Jæja fyrsta færslan í “Powerbuilding” dagbókinni, afhverju kalla ég þetta Powerbuilding, því þetta er blanda af kraftlyftingum og líkamsrækt. Ég stund kraftlyftingar þrjá daga í viku. Mánudagur er brjóst sem er bekkpressan, miðvikudagur er hnébeygjur og svo föstudagur er bak eða deadlift. Þriðjudaga og fimtudaga tek ég axlir, hendur og bak.

Ég byrjaði að lyfta 11 janúar.

Mánudagurinn, það er sem sagt brjóst, leið vel og fannst ég vera ágætlega sterkur. Fyrir æfingu tók ég sjö Amino Bolic frá UN. Hef verið kreatín laus núna í tvær vikur. Styrkurinn er farinn að dala dálítið. Ég tók 6x60kg, 6x80kg, 4x90kg, 2x100kg, 1x110kg. Eins og ég sagði þá hef ég verið með kvef og verið eitthvað slappur, ég hefði getað tekið léttari þyngdirnar mun oftar en ég sleppti því þar sem ég vildi ná max í bekk sem í dag er 110kg. Síðan áfram í bekknum tók ég 90kg, þrjú sett með 3 reps. Síðan 70kg tvö sett með 5-6 reps með þröngt grip. Svo hallandi bekkur með 12x 40kg, 10x50kg, 8x60kg 6x70kg. Síðan tók ég dumbell flys, eða handlóða flugur, veit aldrei hvort maður notar enskuna eða ekki. Það var 12×17,5kg,10x20kg,8×22,5kg. Eftir ræktina tók ég eina skeið af On próteininu.

Þetta í heildina var frekar léttur dagur nema 110kg í bekknum, ástæðan var kraftleysi og eftir bekkinn þá var mér töluvert illt í vöðvafestingunum í höndunum og öxlunum, hugsaði ekki mikið út í það þá. Svaf frekar illa um nóttina þar sem sársaukinn versnaði og ég kom mér ekki fyrir í rúminu, var alltaf að vakna og skipta um stöðu.

Ég ætla að skrifa niður hvað ég er að taka og skrifa smá review um hvern hlut fyrir sig.

Kveðja.
Armanator.

Categories: Æfingadagar Tags: