Ég er Shaq
Lyfta í gær og svo fjórir körfubolta leikir og mitt lið vann alla leikina, mér var líkt við Shaq sem á eflaust ágætlega við, spilaði með honum Ægi sem er aðeins sneggri en ég og eflaust líkari Coby Bryant. Erum gott teymi… Núna er kallinn að reyna að ákveða sig hvort maður eigi að æfa Box í Hnefaleikastöðinni eða með Ju Jitsufélagi Reykjavíkur. Þar eru tveir kunningjar mínir kenna, báðir með nokkur dan í svartabeltinu. Bæði gaman en þetta kostar aðeins of mikinn pening, einhvern 20 þúsund kall fyrir 3 mánuði. Maður spáir í þessu.
Skemmtileg frétt á mbl.is, furðulegt hvað fólki dettur í hug, HUGMYND fyrir Björgu & Benna ? Maður spyr sig:
“Íslenska mannanafnanefndin hefði væntanlega maldað eitthvað í móinn hefði hún fengið svipaða beiðni en Ceejay breytti nafni sínu í: Ceejay A Apple B Boat C Cat D Dog E Elephant F Flower G Goat H House I Igloo J Jellyfish K Kite L Lion M Monkey N Nurse O Octopus P Penguin Q Queen R Robot S Sun T Tree U Umbrella V Violin W Whale X X-Ray Y Yo-Yo Z Zebra Terryn Feuji-Sharemi.”
Ég set þetta hérna inn til að láta Áslaugu hlægja…:)

Nýlegar athugasemdir