Þéttur nettur, tekið upp eftir honum Frosta á X-inu, þetta er fast í hausnum á mér, þetta er notað svona, ef einhver segir, hvað segist ? Þá segir þú, aha… þéttur nettur. Þétt og nett eða bara glatað veit ekki, stundum festist eitthvað svona í hausnum á mér, eins og skiluru, það var óþolandi skeið, allir unglingar landsins sögðu skiluru, einu sinni var ég með orðið temmilegt á heilanum og það er eflaust það skásta sem ég hef haft. Ég sit hérna og er að hlusta á KROQ-FM, stöðin sem ég hlustaði á út í L.A, snilld, mér langar út í sólina, verst að maður þarf eitthvað atvinnuleyfi, kannski ég hegði mér bara eins og mexíkanarnir, heng fyrir utan Home Depot og spyr hvort fólki vanti hjálp við að byggja eitthvað, væri eflaust fyndið að sjá mig hvítan gaur sem varla kann að halda á hamri bjóðast til að hjálpa fólki meðal mexíkananna. “Sorry can I help you build stuff, you need a guy”…. Eflaust ekki margir sem myndu vilja fá mig í vinnu eftir að ég fór í Make-Over á skjáeinum í vikunni, mmmmm sjáið hvernig það endaði hér fyrir neðan….

Ég veit ekki einu sinni hvað þetta á að vera ? Er þetta kall ? Eða mössuð kona ? Hmm…. Eflaust það sama og fólkið myndu hugsa fyrir framan Home-Depot.
Já ræktin er enn á sínum stað, fer fimm sinnum í viku, var svo þreyttur um helgina og með hassperur á ólíklegustu stöðum, ég tognaði í bakinu á þriðjudaginn í hnébeygjum. Við fengum okkar fyrsta skyndibita í 41 dag á föstudaginn, keypti mér Kentucky, eftir að ég var búinn með hann þá fékk ég svo mikinn mórall að ég fór út að skokka í 35 mínútur, þegar því var lokið þá gafst bakið á mér endanlega upp og ég svaf frekar illa þá nótt, alltaf að snúa mér eitthvað og koma mér í betri stellingu en hægt og rólega yfir helgina þá jafnaði það sig aðeins og ég er farinn að labba eins og maður/monkey man en ekki bara eins og monkey man, í dag er það brjóst svo það er bekkpressan, vonandi nær maður nýrri tölu í því.
Allt gott að frétta af liðinu mínu heima, Áslaug fékk sér kort í World Class um daginn, er farinn að hlaupa og taka á því, fór í einhvern Hot Yoga tíma á laugardaginn, einhverjar teygjur, ekkert hardcore humm humm jóga, tek það ekki í mál. Einhverjar teygjur, held að Hot standi fyrir það að herbergið sé heitt, eyðilagði dálítið þá hugmynd sem ég hafði í hausnum á mér, sá fyrir mér hmm já HOT Yoga… Rakel er farin að reyna að labba, stendur upp og reynir að labba meðfram borðum og öðru, það er svakalega gaman og er hún lítið sátt ef maður reynir að hjálpa henni, erfið eins og mamma sín, vill gera allt sjálf. Æðislegt það er verið að skipta um glerið í turninum hjá mér og núna er þeir mættir hjá mér, eftir nokkrar min þá verð ég rúðulaus, Redneck loftræsting hérna á Íslandi í kreppunni.
Þar sem allir hafa lúmskt gaman af myndunum þá luma ég á einni úr mínu prívate fjölskyldu albúmi sem ég ætla að deila með ykkur, þið sáuð eina af mér hérna fyrir ofan eftir nýtt útlit þáttinn, hérna er ein tekin í Norrænu af mér og Áslaugu þegar við keyrðum um evrópu 2004.





























